• fös. 16. jan. 2015
  • Dómaramál

Dómarar leiksins koma frá Bandaríkjunum

Edvin Jurisevic
jurisevic_edvin-auth

Eins og búast mátti við þá koma dómarar vináttulandsleiks Kanada og Íslands frá Bandaríkjunum en dómari leiksins heitir Edvin Jurisevic.  Hann hefur verið FIFA dómari síðan 2010 og dæmir alla jafna í MLS deildinni í Bandaríkjunum.

Honum til aðstoðar verða Eric Boria og Adam Garner og varadómari verður Jair Marrufo.  Í seinni leiknum munu Jurisevic og Marrufo skipta um hlutverk.