A karla - Leikið við Kanada í kvöld
Karlalandsliðið leikur í kvöld fyrri vináttulandsleik sinn gegn Kanada en leikið verður á háskólavelli UCF í Orlando. Leikurinn hefst kl. 21:30 að íslenskum tíma eða kl. 16:30 að staðartíma en seinni vináttulandsleikur þjóðanna fer fram mánudaginn 19. janúar á sama stað.
Liðið æfði í gær og fundaði tvisvar sinnum. Guðmundur Þórarinsson var ekki með á æfingu dagsins líkt og á síðustu æfingu, vegna veikinda en hann er allur að braggast eftir flensu. Annars er hópurinn í góðu standi og mikill hugur í mönnum.
Ekki hefur sést til sólar þá daga sem hópurinn hefur verið í Orlando en veðrið engu að síður verið gott fyrir Íslendinga í janúar. Búast má þó við að sólin láti sjá sig á meðan leik stendur og veðurspáin hljómar upp á 15 gráður.
Byrjunarliðið verður tilkynnt á Facebooksíðu KSÍ um kl. 18:30 en vert er að minna á að leikurinn verður, líkt og seinni leikurinn, í beinni útsendingu hjá SkjáSport.