Fyrsti kvendómarakvartettinn
Greint var frá því hér á vefnum fyrr í vikunni að dómarakvartettinn í landsleik U23 Íslands og Póllands, sem fram fór í Kórnum á miðvikudag, væri eingöngu skipaður konum. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt gerist hér á landi.
Bríet Bragadóttir var dómari, Rúna Kristín Stefánsdóttir og Jovana Cosic aðstoðardómarar, og Birna H. Bergstað varadómari. Rúna Kristín og Jovana eru jafnframt FIFA-aðstoðardómarar.