A karla - Undirbúningur fyrir leikina gegn Kanada heldur áfram
Undirbúningur karlalandsliðsins fyrir vináttulandsleikina gegn Kanada heldur áfram en fyrri leikurinn fer fram föstudaginn 16. janúar og hefstkl 21:30 að íslenskum tíma. Liðið æfði í dag og var vel tekið á því. Allir leikmenn hópsins voru með á æfingunni að undanskildum Guðmundi Þórarinssyni sem er með flensueinkenni og var ekki með.
Aðstæður eru sviipaðar og síðustu daga, skýjað en milt veður engu að síður. Hópurinn breytti svo til í kvöld og skellti sér á leik í NBA deildinni í körfubolta. Þar tóku heimamenn í Orlando Magic á móti Houston Rockets og unnu nokkuð óvæntan sigur í bráðskemmtilegum leik.
Báðir leikirnir gegn Kanada verða í beinni útsendingu hjá SkjáSport og er hugur í hópnum að standa sig í þessum vináttulandsleikjum. Þarna er dýrmætt tækifæri til að skoða fleiri leikmenn en hafa leikið undanfarið og verður spennandi að sjá hvernig menn nýta tækifærið.