• þri. 13. jan. 2015
  • Dómaramál
  • Landslið

Bríet Bragadóttir dæmir leik Íslands og Póllands í Kórnum

Bríet Bragadóttir
KSI_2013_Domarar-084

Dómararnir í vináttuleik U23 landslið Íslands gegn Póllandi eru allir íslenskir.  Dómari verður Bríet Bragadóttir, sem valin var dómari ársins 2014 í Pepsi-deild kvenna.  Henni til aðstoðar verða þær Rúna Kristín Stefánsdóttir og Jovana Cosic, og varadómari verður Birna H. Bergstað Þórmundsdóttir.  Eftirlitsmaður leiksins er Ingi Jónsson.  


Leikurinn fer fram í Kórnum á miðvikudag kl. 18:00 og er aðgangur ókeypis.