Fundað með endurskoðendum félaga um leyfismál
Í síðustu viku var haldinn vinnufundur fyrir endurskoðendur þeirra félaga sem undirgangast leyfiskerfi KSÍ. Um er að ræða árlegan janúarfund, þar sem farið er yfir breytingar á leyfisreglugerð milli ára, sem og áhersluatriði og hagnýta þætti.
Fundað var í höfuðstöðvum KSÍ og sóttu fulltrúar 12 félaga af þeim 24 sem undirgangast kerfið þennan fund.
Ómar Smárason, leyfisstjóri KSÍ, fór yfir hagnýt atriði, Lúðvík Georgsson, formaður leyfisráðs, kynnti breytingar á reglugerðinni milli ára, og Björn Ingi Victorsson frá Deloitte, sérfræðingur leyfisstjórnar í fjárhagslegum þáttum leyfiskerfisins, fór í gegnum sértæka þætti í fjárhagslegum leyfisgögnum. Hér að neðan má að skoða kynningar frá fundinum.