Gylfi Þór Sigurðsson í öðru sæti í kjöri á íþróttamanni ársins 2014
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Swansea, varð í öðru sæti í kjöri á íþróttamanni ársins en tilkynnt var um kjörið í kvöld. Hann átti frábært ár með landsliðinu sem og félagsliði sínu á Englandi. Það var körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson sem var kjörinn íþróttamaður ársins. Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona og leikmaður FC Rosengård, varð í fjórða sæti í kjörinu
Þá var þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar, Rúnar Páll Sigmundsson, valinn þjálfari ársins 2014. Það var svo knattspyrnukappinn Ásgeir Sigurvinsson sem var valinn í heiðurshöll Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands en þessi Eyjamaður gerði garðinn frægan sem landsliðsmaður og atvinnumaður í knattspyrnu sem og landsliðsþjálfari.
KSÍ óskar Gylfa, Söru, Rúnari, Ásgeiri hjartanlega til hamingju sem og íþróttamanni ársins 2014, Jóni Arnóri Stefánssyni.