Fundað um leyfisferlið 2015
Fimmtudaginn 11. desember kl. 13:00 verður haldinn í höfuðstöðvum KSÍ árlegur vinnufundur með leyfisfulltrúum félaganna 24 sem undirgangast leyfisferlið fyrir komandi keppnistímabil. Farið verður yfir breytingar á leyfisreglugerðinni milli ára og ýmis hagnýt atriði.
Ómar Smárason leyfisstjóri KSÍ mun fara yfir hagnýt atriði og vinnulag tengt ýmsum greinum reglugerðarinnar og Lúðvík Georgsson formaður leyfisráðs kynnir breytingar á reglugerðinni milli ára. Þá munu þau Björn Ingi Victorsson og Birna María Sigurðardóttir frá Deloitte fara yfir fjárhagslega þætti, þ.á.m. reglur um hámarksskuldabyrði og eiginfjárstöðu.