Æfingar hjá U17 og U19 kvenna og landshlutaæfing
Helgina 12. - 14. desember verða æfingar hjá U17 og U19 kvennalandsliðum okkar og einnig verða landshlutaæfingar hjá stúlkum í félögum á suðvesturhorninu fæddum árið 2000. Landsliðsþjálfararnir Úlfar Hinriksson og Þórður Þórðarson hafa valið leikmenn á þessar æfingar og má sjá listana hér að neðan ásamt upplýsingum um æfingarnar.