Halldór Björnsson ráðinn þjálfari U17 karla
KSÍ hefur gengið frá ráðningu Halldórs Björnssonar sem þjálfara U17 landsliðs karla næstu tvö árin, og mun hann jafnframt taka við hæfileikamótun KSÍ.
Halldór, sem hefur lokið KSÍ-A þjálfara gráðu og markmannsþjálfaragráðu, hefur kennt á þjálfaranámskeiðum KSÍ og var í þjálfarateymi A landsliðs kvenna sem komst í 8 liða úrslit í lokakeppni EM Í Svíþjóð 2013. Auk þess hefur Halldór þjálfað á Selfossi í áraraðir, m.a. 2. og 3. flokka karla og kvenna og mfl. kvenna. Þá var hann um tíma í fullu starfi hjá Knattspyrnuakademíu Íslands á Suðurlandi, var í þjálfarateymi mfl. karla há Selfossi þegar liðið lék í Pepsi-deildinni og starfaði síðast sem aðstoðarþjálfari mfl.ka. hjá Fylki.
Halldór hefur störf í byrjun janúar 2015 og gildir ráðningin til ársloka 2016.
Vekominn, Halldór!