Æfingar hjá U23, U19 og U17 kvenna
Helgina 29. og 30. nóvember verða æfingar hjá þremur landsliðshópum kvenna, U23, U19, og U17 kvenna. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og hafa landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson, Þórður Þórðarson og Úlfar Hinriksson, valið hópa á þessar æfingar.