U17 kvenna - Seinni vináttulandsleikurinn gegn Finnum í dag
Stelpurnar í U17 leika í dag seinni vináttulandsleikinn gegn Finnum en leikið er í Eerikkla í Finnlandi. Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn og má sjá það að neðan.
Byrjunarliðið:
Markvörður - Ingibjörg Valgeirsdóttir
Hægri bakvörður - Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir
Vinstri bakvörður - Anna Rakel Pétursdóttir
Miðverðir - Ingibjörg Rún Óladóttir og Selma Sól Magnúsdóttir
Tengiliðir - Andrea Mist Pálsdóttir, Stefanía Ásta Tryggvadóttir og Jasmín Erla Ingadóttir fyrirliði
Hægri kantur - Agla María Albertsdóttir
Vinstri kantur - Andrea Celeste Diaz
Framherji - Melkorka Katrín Pétursdóttir
Leikurinn hefst kl 16.00 að íslenskum tíma og er í beinni á heimasíðu finnska sambandsins.
http://www.huuhkaja.tv/