U17 og U19 kvenna - Dregið í undankeppni EM 2016
Í dag var dregið í undankeppni EM 2016 en keppnin hefst að hausti 2015. Stelpurnar í U17 kvenna munu leika í Svartfjallalandi gegn heimastúlkum, Finnum og Færeyingum en leikirnar fara fram 22. - 27. október. Hjá U19 lentu stelpurnar í riðli með Sviss, Grikklandi og Georgíu og verður leikið í Grikklandi.