Söguleg knattspyrnuvika í undankeppni EM 2016
Þessi knattspyrnuvika í undankeppni EM 2016, eða „Week of football“, virðist ætla að vera söguleg fyrir minni aðildarþjóðir UEFA. Á föstudagskvöldið unnu Færeyingar frækinn eins marks sigur á Grikkjum í Aþenu, og í kvöld, laugardagskvöld, léku liðsmenn Liechtenstein sama leik og unnu 1-0 sigur Moldóvum á útivelli í G-riðli. Í sama riðli eru Austurríkismenn efstir eftir 1-0 sigur á Rússum.
Þá komst San Marínó á blað í E-riðli með því að gera markalaust jafntefli við Eistland. Englendingar tróna á toppi E-riðils með fullt hús stiga eftir fjóra leiki.
Slóvakar eru einnig með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í C-riðli, en Spánverjar og Úkraínumenn fylgja þeim fast á hæla – öll þessi lið unnu sannfærandi sigra á sínum andstæðingum í kvöld.
Eins og kunnugt er mæta Íslendingar Tékkum í toppslag A-riðils á sunnudag, en leikið er í Plzen. Uppselt er á leikinn og tekur leikvangurinn um 12 þúsund manns. Samkvæmt upplýsingum frá tékkneska sambandinu bárust um 45.000 umsóknir um miða á leikinn, þannig að ljóst er að áhuginn er ekki síður mikill í Tékklandi en heima á Íslandi. Á leiknum verða ríflega 700 íslenskir stuðningsmenn sem munu á efa láta vel í sér heyra.
Allt um undankeppni EM á vef UEFA