Hólmar Örn Eyjólfsson í A-landsliðshópinn
Hólmar Örn Eyjólfsson, sem leikur með Rosenborg í Noregi, hefur verið kallaður inn í A-landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn við Belga á miðvikudag, þar sem fyrir liggur að Kári Árnason muni ekki taka þátt í þeim leik vegna meiðsla. Hólmar Örn á að baki einn A-landsleik, en hann kom inn á sem varamaður í vináttuleik gegn Svíum árið 2012. Jafnframt hefur Hólmar leikið fjölmarga leiki með öllum yngri landsliðum Íslands, þar af heila 27 leiki með U21 liðinu.
Landsliðið kemur saman í Brüssel á mánudag og hefur þá strax undirbúning og æfingar.