Uppselt á leikinn í Plzen
Uppselt er á leik Tékka og Íslendinga í undankeppni EM en leikið verður í Plzen, sunnudaginn 16. nóvember. Knattspyrnusamband Íslands fékk ríflega 600 miða á þennan leik fyrir íslenska stuðningsmenn og eru þeir allir búnir og margir sem bíða á biðlista. Ekki er mögulegt að fá fleiri miða fyrir íslenska stuðningsmenn enda er uppselt á völlinn í Plzen sem tekur um 11. 700 manns í sæti.
Það verður því vafalaust mikil stemning á vellinum í Plzen, sunnudaginn 16. nóvember, og munu sjónvarpsáhorfendur vafalaust heyra vel í íslenskum stuðningsmönnum.