Belgar tilkynna hópinn fyrir leikina gegn Íslandi og Wales
Belgar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir landsleiki gegn Íslandi og Wales en vináttulandsleikur Belga og Íslendingar fer fram í Brussel, miðvikudaginn 12. nóvember. Belgar leika svo gegn Wales í undankeppni EM, sunnudaginn 16. nóvember.
Þetta verður í níunda skiptið sem leikið verður gegn Belgum sem hafa haft sigur í öll skiptin hingað til. Síðast léku þjóðirnar í undankeppni HM árið 1977 og þá unnu Belgar, 4 – 0.
Belgíska liðið hefur náð frábærum árangri undanfarin ár og komust í 8-liða úrslit á HM í Brasilíu en féllu þar úr leik gegn Argentínu. Belgar eru í 4. sæti á styrkleikalista FIFA sem segir nokkuð um uppgang þeirra í knattspyrnuheiminum.
Markatalan úr leikjunum átta er mjög hagstæð Belgum eða 29 - 5. Þessi fimm mörk komu í tveimur fyrstu leikjunum sem fram fóru árið 1957 og enduðu 8 - 3 og 2 - 5. Það voru Skagamennirnir Þórður Þórðarson og Ríkharður Jónsson sem skoruðu þessi mörk, Þórður með 3 og Ríkharður með 2.