Þóroddur dæmir á Spáni
Þóroddur Hjaltalín verður í eldlínunni í dag, miðvikudaginn 5. nóvember, þegar hann dæmir leik Athletic Bilbao og Porto í Meistaradeild ungmenna en leikið verður í Baracaldo á Spáni. Þóroddi til aðstoðar verða þeir Áskell Þór Gíslason og Jóhann Gunnar Guðmundsson.
Meistardeild ungmenna er leikin samhliða Meistaradeild Evrópu og raðast þá ungmennalið félaganna í riðla í samræmi við hvernig dregið er í riðla í Meistaradeild UEFA. Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með textalýsingu af leiknum á heimasíðu UEFA.