Úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla framundan
Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verða æfingarnar í Kórnum og Egilshöll. Tveir hópar verða við æfingar hjá U17 að þessu sinni og verða þær æfingar undir stjórn landsliðsþjálfarans Þorláks Árnasonar en Ólafur Ólafsson, aðstoðarþjálfari U19 karla, mun stjórna æfingum hjá U19.