Æfingar hjá U17, U19 og U23 kvenna um komandi helgi
Landsliðsþjálfararnir, Freyr Alexandersson, Þórður Þórðarson og Úlfar Hinriksson, hafa valið hópa fyrir æfingar um komandi helgi. Þá æfa landslið U23, U19 og U17 kvenna og fara æfingarnar fram í Kórnum og Egilshöll. Einnig verða mælingar hjá U17 og U19 kvenna sem verða á föstudagskvöldinu.