• mán. 20. okt. 2014
  • Dómaramál

Íslenskur dómarasextett í Glasgow á fimmtudag

Kristinn Jakobsson
Kristinn_Jakobsson_2008

Íslenskur dómarasextett verður að störfum á Celtic Park í Glasgow næstkomandi fimmtudag þegar skoska liðið Celtic og FC Astra frá Rúmeníu mætast í Evrópudeild UEFA.  Kristinn Jakobsson verður dómari og með honum tveir aðstoðardómarar, fjórði dómari og tveir aukaaðstoðardómarar.  Celtic er í efsta sæti D-riðils með fjögur stig eftir tvo leiki, en FC Astra er án stiga.

Dómarateymið

  • Dómari - Kristinn Jakobsson
  • Aðstoðardómari 1 - Gylfi Már Sigurðsson
  • Aðstoðardómari 2 - Sigurður Óli Þórleifsson
  • Fjórði dómari - Gunnar Sverrir Gunnarsson
  • Aukaaðstoðardómari 1 - Þóroddur Hjaltalín
  • Aukaaðstoðardómari 2 - Vilhjálmur Alvar Þórarinsson