Tvö mörk í fyrri hálfleik kláruðu Armena
U17 landslið karla vann í dag góðan tveggja marka sigur á Armenum í undankeppni EM, en riðillinn er leikinn í Moldavíu. Bæði mörk Íslands komu í fyrri hálfleik. Íslenska liðið er nú með fjögur stig eftir tvo leiki og mætir Ítalíu í síðustu umferð, sem fram fer á mánudag, en Ítalir hafa unnið báða leiki sína með sömu markatölunni, 3-0, og eru þegar komnir áfram. Jafntefli gegn Ítalíu tryggir íslenska liðinu sæti í milliriðlum. Tapi íslenska liðið og Moldóvar vinna Armena kemur til útreikninga vegna innbyrðis viðureigna og/eða markatölu. Takist hins vegar Moldóvum ekki að vinna Armena er íslenska liðið komið áfram, burtséð frá úrslitum í leik Íslands og Ítalíu.
Okkar drengir voru sterkari aðilinn heilt yfir gegn Armenum og voru því vel að sigrinum komnir. Máni Austmann Hilmarsson skoraði fyrra markið á 13. mínútu og Erlingur Agnarsson bætti öðru marki við eftir 36. mínútna leik. Armernar gerðu tvær breytingar í hálfleik og freistuðu þess að snúa leiknum sér í hag. Það tókst þó ekki og Íslendingar höfðu áfram undirtökin í leiknum. Jón Dagur Þorsteinsson var nærri því að bæta við þriðja marki Íslands á 75. mínútu og Erlingur Agnarsson á lokamínútunni, en mörkin urðu ekki fleiri.
Sem fyrr segir fer leikur Íslands og Ítalíu fram á mánudag og hefst hann kl. 12:00 að íslenskum tíma.