U17 karla - Leikið við Moldóva í dag
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið byrjunarliðið sem mætir heimamönnum í Moldóvu í fyrsta leiknum í undankeppni EM. Leikurinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma og er hægt að fylgjast með textalýsingu frá leiknum á heimasíðu UEFA.
Byrjunarliðið:
Markvörður:
- Andri Þór Grétarsson
Aðrir leikmenn:
- Kristófer Konráðsson
- Máni Hilmarsson
- Viktor Helgi Benediktsson
- Erlingur Agnarsson
- Birkir Valur Jónsson
- Alfons Sampsted
- Axel Andrésson
- Jón Dagur Þorsteinsson
- Júlíus Magnússon, fyrirliði
- Dagur Hilmarsson