U21 karla - Byrjunarlið Íslands gegn Dönum (uppfært)
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Dönum í seinni leik þjóða í umspili um sæti í úrslitakeppni EM 2015. Leikurinn hefst kl. 16:15 á Laugardalsvelli og eru áhorfendur hvattir til þess að fjölmenna og hvetja strákana í þessum mikilvæga stórleik.
Uppfært: Breyting á byrjunarliði Íslands fyrir U21 leikinn, Rúnar Alex er ekki leikfær og í hans stað kemur Fredrik Schram. Anton Ari Einarsson, sem var kallaður í hópinn á dögunum, kemur á bekkinn.
Markvörður:
- Frederik Schram (uppfært)
Aðrir leikmenn:
- Sverrir Ingi Ingason, fyrirliði
- Brynjar Gauti Guðjónsson
- Orri Sigurður Ómarsson
- Hjörtur Hermannsson
- Guðmundur Þórarinsson
- Andri Rafn Yeoman
- Arnór Ingvi Traustason
- Ólafur Karl Finsen
- Þorri Geir Rúnarsson
- Hólmbert Aron Friðjónsson