Frítt inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á Ísland - Danmörk
Frítt er inn fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja á seinni umspilsleik U21 karlalandsliða Íslands og Danmerkur. Leikið verður á Laugardalsvelli í dag, þriðjudaginn 14. október, og hefst kl. 16:15. Hægt er að framvísa viðeigandi skírteinum við innganginn og þarf því ekki að sækja miða áður á skrifstofu KSÍ.