U21 karla - Allt undir á Laugardalsvelli á þriðjudag
Strákarnir í U21 verða í eldlínunni á Laugardalsvelli kl. 16:15, þriðjudaginn 14. október. Þá leika þeir gegn Dönum, seinni leikinn í umspili um sæti í úrslitakeppni EM sem fram fer í Tékklandi á næsta ári. Fyrri leik þjóðanna lauk með markalausu jafntefli í Álaborg og því ráðast úrslitin á Laugardalsvellinum.
Það er augljóst að stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum fyrir strákana í þessum leik en hægt er að kaupa miða í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is. Miðinn kostar 1.500 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn, 16 ára og yngri. Miðasala á Laugardalsvelli opnar kl. 13:00 á leikdag.
Mætum öll og styðjum strákana okkar alla leið til Tékklands!
Áfram Ísland!