Bleika slaufan í bleikum október
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. KSÍ styður sem fyrr baráttuna gegn krabbameinum og verður slaufan sýnileg á vef KSÍ í októbermánuði.
Skipuleg leit að legháls– og brjóstakrabbameini bjargar mannslífum. Því fyrr sem mein greinist því meiri líkur eru á lækningu. Um helmingur kvenna mætir ekki reglulega í leghálskrabbameinsleit. Allt um þetta verkefni á vef Bleiku slaufunnar.