U21 karla - Miðasala hafin á Ísland - Danmörk
Strákarnir í U21 mæta Dönum á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 14. október kl. 16:15, en um er að ræða seinni leik þjóðanna í umspili fyrir úrslitakeppni U21 karla. Í húfi er sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í Tékklandi á næsta ári.
Fyrri leikurinn fer fram í Álaborg, föstudaginn 10. október en það verður ljóst eftir leikinn á Laugardalsvellinum hvor þjóðin stendur uppi með pálmann í höndunum. Það er ljóst að stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í þessu leik og eru landsmenn hvattir til þess að fjölmenna og styðja strákana.
Miðasala á leikinn fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.
Miðverð:
Fullorðnir: 1.500 krónur
Frítt inn fyrir 16 ára og yngri
Fjölmennum á Laugardalsvöllinn og styðjum strákana okkar!