Stórsigur á Serbum í síðasta landsleik Þóru
Íslendingar lögðu Serba örugglega að velli í kvöld á Laugardalsvelli en þetta var lokaleikur Íslands í undankeppni HM. Lokatölur urðu eftir að staðan hafði verið 3 – 0 í leikhléi. Íslenska liðið endaði í öðru sæti í riðlinum en komust þó ekki í umspil fyrir úrslitakeppni HM sem fram fer í Kanada 2015.
Það var Harpa Þorsteinsdóttir sem opnaði markareikninginn á 7. mínútu og Glódís Perla Viggósdóttir bætti við marki þremur mínútum síðar, hennar fyrsta landsliðsmark í 25. landsleiknum. Fleiri leikmenn áttu eftir að opna sinn landsliðsmarkareikning í þessum leik. Rakel Hönnudóttir gerði svo þriðja mark liðsins á 27. mínútu en mörkin voru ekki fleiri þegar gríski dómarinn flautaði til leikhlés.
Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark, og fjórða mark Íslendinga á 58. mínútu en Serbar komust á blað tveimur mínútum síðar. Nú gerðust hlutirnir hratt því Dagný Brynjarsdóttir skoraði á 63. mínútu. Það var svo á 67. mínútu sem brotið var á Rakel Hönnudóttur innan vítateigs og dæmd vítaspyrna. Yfir völlinn skokkaði þá Þóra Helgadóttir og, í sínum 108. og síðasta landsleik, skoraði sitt fyrsta landsliðsmark með þrumuskoti. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði svo sjöunda mark Íslands á 71 mínútu og nokkrum andartökum síðar hafði Rakel Hönnudóttir gert áttunda markið. Það var svo Dagný Brynjarsdóttir sem gerði níunda og síðasta mark leiksins á 84. mínútu.
Góður leikur hjá íslenska liðinu þar sem vilji og einbeiting skinu af leikmönnum. Með þessum úrslitum tryggði Ísland sér annað sætið í riðlinum en Danir töpuðu óvænt gegn Ísrael á heimavelli í kvöld, 0 – 1. Það dugir hinsvegar ekki íslenska liðinu til að komast í umspil fyrir úrslitakeppnina því aðeins fjórar þjóðir, með bestan árangur í öðru sæti úr riðlunum tíu, komast í umspilið. Engu að síður frábær endir á góðri undankeppni og ekki síst ánægjulegt að kveðja Þóru Helgadóttur með slíkum leik og úrslitum. Þóra lék í kvöld sinn 108. landsleik en A - landsliðsferill hennar hófst árið 1998 og spannar því góð 16 ár. Frábær leikmaður sem hefur verið einn besti markvörður heims um árabil.