• þri. 16. sep. 2014
  • Dómaramál

Dómarar frá Grikklandi á leik Íslendinga og Serba

Thalia Mitsi
thalia-mitsi-at-ethnikos-asteras-kastoria

Það verða dómarar frá Griklandi sem verða við stjórnvölinn á leik Íslendinga og Serba í undankeppni HM en leikið verður á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 17. september kl. 17:00.  Dómarinn heitir Thalia Mitsi og henni til aðstoðar verða löndur hennar Urania Foskolou og Panagiota Koutsoumpou.  Fjórði dómari leiksins er svo Bríet Bragadóttir.

Þetta gríska dómaraþríeyki var einnig hér á landi fyrir fjórum árum síðan þegar þær dæmdu leik Íslands og Norður Írlands í undankeppni HM 2011.

Miðasala á leikinn er í fullum gangi og er hægt að kaupa miða í gegnum miðasölukerfi hjá www.midi.is.