U21 karla - Staðfestur leiktími á Ísland - Danmörk
Staðfestur hefur verið leiktími á leik Íslands og Danmerkur en um er að ræða seinni leik þjóðanna í umspili um sæti í úrslitakeppni U21 karla. Leikið verður á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 14. október kl. 16:00.
Fyrri leikurinn verður í Álaborg, föstudaginn 10. október en sú þjóð sem hefur betur samanlagt úr leikjunum tveimur kemst í úrslitakeppnina í Tékklandi 2015.