Sigrún Ella fékk nýliðamerki
Sigrún Ella Einarsdóttir lék sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Ísrael í undankeppni HM 2015 á laugardag. Hún kom inn á sem varamaður á 70. mínútu, lék vel og var síógnandi á hægri kantinum. Að leik loknum fékk hún afhent nýliðamerki A landsliða og var það Guðrún Inga Sívertsen gjaldkeri stjórnar KSÍ sem afhenti merkið.
Sigrún, sem hafði leikið tæplega 100 meistaraflokksleiki fyrir FH áður en hún hafði félagaskipti í Stjörnuna fyrir þetta keppnistímabil, á einnig að baki leiki fyrir U17 og U19 landslið Íslands.
Myndina sem fylgir fréttinni, sem og fjölmargar aðrar myndir, má skoða í myndasafni KSÍ.