A kvenna - Miðasala hafin á Ísland - Serbía
Íslenska kvennalandsliðið tekur á móti því serbneska í lokaleik sínum í undankeppni HM og verður leikið á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 17. september kl. 17:00. Þó svo að Ísland eigi ekki möguleika á því að komast í úrslitakeppnina í Kanada þá skiptir miklu máli að ljúka keppninni á jákvæðum nótum og setja þar með tóninn fyrir undankeppni EM.
Markvörðurinn, Þóra Helgadóttir, hefur gefið út að þetta verði hennar síðasti landsleikur, sá 108. í röðinni, og er hér gott tækifæri fyrir áhorfendur að kveðja hana eftir frábæran feril.
Styðjum stelpurnar alla leið og allt til loka í þessari keppni.
Miðaverð:
Fullorðnir: 1000 krónur
Frítt inn fyrir 16 ára og yngri
Áfram Ísland!