Miðasala á Ísland - Ísrael
Ísland tekur á móti Ísrael í undankeppni HM á Laugardalsvelli, laugardaginn 13. september kl.17:00 og er miðasala hafin á þennan leik.
Nú er lokaspretturinn hafinn í þessari undankeppni og eru stelpurnar staðráðnar að ljúka keppninni með stæl. Þjóðirnar mættust fyrr á þessu ári ytra og þá vann Ísland nauman sigur og ljóst að um hörkuleik verður að ræða á Laugardalsvellinum.
Knattspyrnuáhugafólk er hvatt til þess að fjölmenna á völlinn á laugardaginn og sýna okkar stúlkum þann stuðning sem þær eiga skilið.
Miðaverð:
- Fullorðnir: 1.000 krónur
- Frítt inn fyrir 16 ára og yngri