Þorvaldur dæmir í Sarajevo
Þorvaldur Árnason verður í eldlínunni, mánudaginn 8. september, þegar hann dæmir leik Bosníu/Hersegóvínu gegn Ungverjalandi. Leikið verður í Sarajevo og er leikurinn í undankeppni EM U21 karla. Þorvaldi til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Frosti Viðar Gunnarsson. Varadómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.