Þrjár breytingar á byrjunarliði U19 karla gegn Norður-Írum
U19 landslið karla mætir Norður-Írum í vináttulandsleik í dag, föstudag. Leikið er í Belfast og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Þetta er annar leikur þessara liða, sem mættust á miðvikudag, og lauk þeim leik með 2-2 jafntefli.
Byrjunarlið Íslands í dag hefur verið opinberað og eru þrjár breytingar gerðar milli leikja. Hlynur Örn Hlöðversson kemur í markið í stað Harðar Fannars Björgvinssonar. Þá koma þeir Max Odin Eggertsson og Darri Sigþórsson inn í fyrstu ellefu í stað Bjarka Þórs Viðarssonar og Ragnars Más Lárussonar.