• mið. 03. sep. 2014
  • Dómaramál

Kristinn dæmir vináttulandsleik Svíþjóðar og Eistlands

Kiddi-Jak-2011
Kiddi-Jak-2011

Kristinn Jakobsson verður við stjórnvölinn á vináttulandsleik Svíþjóðar og Eistlands sem fram fer á Friends Arena í Solna, fimmtudaginn 4. september.  Kristni til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Áskell Þór Gíslason.

Þessi leikur er liður í undirbúningi þjóðanna fyrir undankeppni EM 2016 sem hefst í næstu viku en þá leika Svíar gegn Austurríki en Eistland mætir Slóveníu.