U19 kvenna - Hópurinn sem leikur í Litháen
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hópinn sem leikur í undankeppni EM í september en riðill Íslands er leikinn í Litháen. Ísland leikur þar gegn heimastúlkum, Króatíu og Spáni og er fyrsti leikurinn gegn Litháen, laugardaginn 13. september.