U21 karla - Hópurinn sem mætir Armenum og Frökkum
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Armenum og Frökkum í lokaleikjum riðlakeppni EM hjá U21 karla. Leikið verður gegn Armenum á Fylkisvelli, miðvikudaginn 3. september og gegn Frökkum í Auxerre, föstudaginn 8, september.
Ísland er í öðru sæti riðilsins og er gott sem öruggt með það sæti en það gefur möguleika á umspili. Þær fjórar þjóðir sem eru með bestan árangur af liðunum í öðru sæti riðlanna tíu, tryggja sér sæti í umspili og því er hvert stig dýrmætt í baráttunni. Það er því sérstaklega mikilvægt að styðja strákana á Fylkisvelli 3. september.