Dómari frá Wales á leik ÍBV og Þórs
Það verður dómari frá Wales sem verður við stjórnvölinn á leik ÍBV og Þórs í Pepsi-deild karla í dag. Hann heitir Ryan Stewart en þetta er liður í samstarfi knattspyrnusambanda Íslands og Wales um dómaraskipti. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag, sunnudaginn 24. ágúst, og hefst kl. 17:00.