Ísland - Danmörk kl. 19:30 í kvöld
Ísland tekur á móti Dönum í kvöld í undankeppni HM 2015 og fer leikurinn fram á Laugardalsvelli kl. 19:30. Mikilvægi leiksins er mikið fyrir báðar þjóðir en þær berjast um annað sæti í riðlinum sem getur gefið sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina í Kanada.
Þetta er í fyrsta skiptið sem danska kvennalandsliðið leikur hér á landi en allir 8 leikirnir til þessa hafa farið fram á erlendri grundu. Íslenska liðið á eftir þrjá leiki í riðlinum, alla á heimavelli, en leikurinn við Dani er lykilleikur upp á framhaldið.
Miðasala er í gangi á www.midi.is en miðaverð er 1.000 krónur en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Miðasalan á Laugardalsvelli opnar kl. 17:00.
Nú er mikilvægt að fjölmenna á völlinn í blíðunni og styðja stelpurnar í baráttunni.
Áfram Ísland!