ÍR auglýsir eftir þjálfara fyrir yngri flokka karla og kvenna
Knattspyrnudeild ÍR leitar að einstaklingi sem vill slást í hóp metnaðarfullra þjálfara sem nú þegar starfa hjá deildinni.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er faglega góður, drífandi og með brennandi áhuga á að þjálfa börn og unglinga.
Æskilegt er að þjálfari hafi reynslu af þjálfun barna og unglinga og hafi sótt þjálfaranámskeið hjá KSÍ.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun september, þegar knattspyrnuæfingar hefjast aftur hjá deildinni.
Reynsla, þjálfaramenntun og/eða íþróttafræðimenntun er kostur.
Umsókn skal senda á irknattspyrna@hotmail.com (nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Halldóri yfirþjálfara í síma 891-6320.