• mið. 13. ágú. 2014
  • Dómaramál

Sækir undirbúningsnámskeið fyrir toppdómara UEFA

Kristinn Jakobsson
Kristinn_Jakobsson_2008

Kristinn Jakobsson sækir um þessar mundir sérstakt undirbúningsnámskeið fyrir toppdómara sem dæma alþjóðlega leiki.  Á námskeiðinu er sérstök áhersla lögð á undirbúning fyrir undankeppni EM karlalandsliða 2016 og svo riðlakeppni Meistaradeildar UEFA og Evrópudeildar UEFA.

Námskeiðið er haldið í Nyon í Sviss, rétt við höfuðstöðvar UEFA, og stendur yfir dagana 13. til 15 ágúst.