Mótsmiðasalan opnuð að nýju
Opnað hefur verið að nýju fyrir mótsmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM 2016 og fer salan fram á vefsíðunni midi.is sem fyrr. Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á á Laugardalsvelli á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni. Að auki fá mótsmiðahafar forkaupsrétt á aðgöngumiðum fyrir aðra leiki A landsliðs karla. Hægt er að kaupa mótsmiða í þrjú svæði og þar með í þremur verðflokkum eins og áður.
Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á þennan möguleika, þ.e. að kaupa miða á alla heimaleiki Íslands í tiltekinni undankeppni. Mótsmiðasalan opnaði fyrst á mánudag og voru viðtökur afar góðar.