Sala mótsmiða fer vel af stað
Sala mótsmiða á alla heimaleiki Íslands í undankeppni EM 2016 hefur farið vel af stað og seldist m.a. upp í ódýrasta svæðið á stuttum tíma. Miðasölunni hefur verið lokað um sinn og verður opnuð að nýju, þegar fleiri miðum hefur verið bætt í sölu.
Nánari tímasetning verður tilkynnt á vef KSÍ síðar í dag.
Afhending miða til þeirra sem þegar hafa keypt mótsmiða hefst mánudaginn 18. ágúst næstkomandi.