Opnað fyrir mótsmiðasölu kl 12:00 í dag, mánudag!
Opnað verður fyrir mótsmiðasölu á leiki Íslands í undankeppni EM 2016 kl. 12:00 á hádegi í dag, mánudag. Mótsmiðahafi hefur tryggt sér sama sæti á á Laugardalsvelli á öllum fimm heimaleikjum íslenska liðsins í undankeppninni. Að auki fá mótsmiðahafar forkaupsrétt á aðgöngumiðum fyrir vináttuleiki A landsliðs karla. Hægt er að kaupa mótsmiða í þrjú svæði og þar með í þremur verðflokkum eins og áður.
Seldir verða um 130 miðar í hvert af þessum þremur svæðum, eða 400 miðar alls. Mest er hægt að kaupa átta mótsmiða á hverja kennitölu (stór fjölskylda). Opnað verður fyrir sölu á fleiri mótsmiðum ef þörf krefur.
Sala mótsmiðanna fer fram á vefsíðunni midi.is og þar er allar upplýsingar að finna.