U17 karla - Markalaust jafntefli gegn Finnum
Strákarnir í U17 gerðu markalaust jafntefli gegn Finnum í lokaleik liðsins í riðlakeppni Norðurlandamótsins sem fram fer í Danmörku. Ísland leikur því um sjöunda sætið gegn Færeyingum og fer sá leikur fram á laugardaginn.
Það verða Noregur og Svíþjóð sem leika til úrslita á mótinu og Danir og Englendingar mætast í leik um þriðja sætið. Bandaríkin og Finnland leika svo um fimmta sætið.