U17 karla - Leikið gegn Finnum í dag
Strákarnir í U17 leika í dag lokaleik sinn í riðlakeppni Norðurlandamótsins í Danmörku og hefst leikurinn kl .16:00. Mótherjarnir eru Finnar en leikið verður í Kolding. Íslenska liðið hefur beðið lægri hlut á báðum leikjunum til þessa, gegn Englandi og Svíþjóð.
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur tilkynnt byrjunarliðið og er það þannig skipað:
Markvörður:
- Daði Freyr Arnarson
Aðrir leikmenn:
- Kristófer Konráðsson
- Alfons Sampsted
- Axel Óskar Andrésson
- Dagur Austmann Hilmarsson
- Jón Dagur Þorsteinsson
- Júlíus Magnússon
- Máni Austmann Hilmarsson
- Birkir Valur Jónsson
- Ægir Jarl Jónasson
- Erlingur Agnarsson
Um mótið - Sérvefur hjá danska knattspyrnusambandinu