Kristinn dæmir í Rússlandi
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Dinamo Moskva frá Rússlandi og Hapoel Kiryat frá Ísrael í Evrópudeild UEFA en leikið verður í Khimki í Rússlandi, fimmtudaginn 31. júlí. Kristni til aðstoðar verða þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson og varadómari verður Þóroddur Hjaltalín.
Þetta er fyrri viðureign liðanna í þriðju umferð undankeppni Evrópudeildar UEFA.