U17 kvenna - Naumt tap gegn Finnum
Stelpurnar í U17 biðu í dag lægri hlut gegn Finnum á Norðurlandamótinu sem lauk í Svíþjóð í dag. Leiknum lauk með 2 - 3 sigri Finna eftir að íslensku stelpurnar höfðu leitt í leikhléi, 1 - 0. Íslenska liðið hafnaði því í 8. sæti mótsins.
Elena Brynjarsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiksins en Finnar jöfnuðu strax í upphafi síðari hálfleiks. Una Margrét Einarsdóttir kom Íslandi aftur yfir um miðjan síðari hálfleik, þá nýkomin inná sem varamaður. Finnar jöfnuðu þegar um 5 mínútur voru eftir af leiknum og skoruðu svo sigurmarkið í uppbótartíma og fögnuðu því sigri.